7.9.2007 | 15:19
Honeymoon in Barcelona
4.9.2007 | 00:27
Þá erum við orðin hjón!
Stundinn stóra rann loks upp. Síðastliðinn laugardag, 1. september gengum við, Lára og Halli í heilagt hjónaband í Bessastaðakirkju. Þetta var frábær dagur, eða öllu heldur FULLKOMINN dagur. Okkur hjónunum langar að nota tækifærið og þakka öllum þeim sem samfögnuðu með okkur á þessum gleðilega degi í okkar lífi. Einnig viljum þakka öllum þeim sem komu að því að gera þennan dag eins eftirminnilegan og hann varð, séra Báru Friðriksdóttur fyrir hlýlega athöfn, Rögnu og Friðdóru fyrir frábæra veislustjórn, mömmu (Sigrúnu) fyrir geggjaðslega góða brúðartertu, mömmu (Ingibjörgu) fyrir bestu kransakökuna í bænum, ótrúlegan vinahóp sem sýndi hæfileika sína í hinu ýmsum skemmtiatriðum um kvöldið, feðrum okkar fyrir yndislega fallegar og skemmtilegar ræður, Helenu dóttir okkar og Ásthildi frænku hennar fyrir að vera yndislegar blómameyjar og algjörar prinsessur, Dagnýju fyrir að sjá um þessar prinsessur, Atla fyrir tæknistjórn um kvöldið, tengdó ásamt Ingunni og Gunnu fyrir hresst og skemmtilegt söngatriði, Mæju fyrir skemmtilega ræðu og Barböru og Unu fyrir að gera brúðarsvítuna á Nordica svona rómantíska, Margréti Eir fyrir fallegan söng í kirkjunni, þjóðverjunum (vinafólk Láru sem komu frá Þýskalandi) við aðstoð við skreytingu á salnum, Nökkva mág/svila fyrir að lána okkur þennan glæsilega sal, Hafliða kokk fyrir geggjaða 5 rétta gourmet máltíð, þjónunum fyrir góða þjónustu, og svo má ekki gleyma fjölskyldu og vinum sem hjálpuðu okkur fram á nætur í undirbúning og frágangi. Takk kærlega fyrir okkur!
Kær kveðja
Lára og Halli
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
13.7.2007 | 10:12
Brúðkaupsdagurinn okkar 1. september 2007
********************************************************************
Athöfnin
Þann 1. september nk. munum við, Lára Janusdóttir og Haraldur Guðjónsson ganga í heilagt hjónaband. Séra Bára Friðriksdóttir mun gefa okkur saman. Athöfnin hefst í Bessastaðakirkju kl. 16.00.
Veislan
Við hefðum viljað halda okkur á Bessastöðum en Dorrit er víst með partí þetta kvöldið svo við þurftum að færa okkar veislu annað! En brúðkaupsveislan okkar verður haldin í mjög skemmtilegum gluggasal uppá 8. hæð að Suðurlandsbraut 4 í Reykjavík, að vígslu lokinni.
Ragna E. Kvaran og Friðdóra Kristinsdóttir, vinkonur brúðar, munu vera veislustjórar kvöldsins. En gaman er að segja frá því að Ragna á nú eiginlega heiðurinn af því að brúðhjónin kynntust!!!!
Matseðill
Við munum koma ykkur á óvart með ýmsar kræsingar héðan og þaðan. Ef það er einhver með ofnæmi eða er grænmetisæta, þá endilega látið okkar vita við fyrsta tækifæri.
Dansiball
Að lokinni dagskrá mun verða spilað fyrir dansi. Á sá dans ekki að hefjast með brúðarvalsi brúðhjóna? Nú er aldeilis verið að setja pressu á sjálfan sig að fara að æfa. En ætli það sé ekki best að birta þetta og þá er ekki aftur snúið!!!!
Óskalisti brúðhjóna ![]()
Við höfum sett nokkra hluti á óskalista hjá Mirale, Síðumúla 33, 108 Reykjavík.
Einnig má kíkja við í Kokku, Laugavegi 47. Þar er um margt að velja á gjafalista og ekki á gjafalista. Þetta er að mínu (Lára) mati konfektbúð matgæðingsins!
Kristín/stúdíó subba, Hamraborg 1, s. 8959556. Hún er með margt mjög flott (t.d. karafla og glös, kaffikrúsir og skálar í ýmsum stærðum og gerðum). Gott er að hringja á undan, þar sem opnunartími er dáldið breytilegur.
Annað á óskalista er sem dæmi Kitchen Aid blender (burstað stál) sem fæst á mörgum stöðum í bænum.
********************************************************************
Við hlökkum til að sjá ykkur á brúðkaupsdaginn okkar,
Með kærri kveðju,
Halli + Lára
P.s. endilega skráið ykkur í gestabókina, verið ófeimin. Gaman að vita hverjir kíkja við hérna ![]()
Nánari upplýsingar
Lára 822 3237 larajan@mp.is
Haraldur 825 8081 harald@marel.is
********************************************************************
Vinir og fjölskylda | Breytt 22.8.2007 kl. 15:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)





